Fyrsti félagsfundur ársins 2015 verður haldinn mánudaginn 26. janúar kl. 17:00 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60.
Guðný Valgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur, flytur upphafsorð og bæn.
Dr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur, flytur erindi sem ber yfirskriftina: Líknarþjónusta og sálgæsla.
Hugvekju flytur Björg Þórhallsdóttir, hjúkrunarfræðingur og söngkona.
Tónlistarflutning annast Björg Þórhallsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson, organisti.
Súpa og samfélag að dagskrá lokinni.
Verið hjartanlega velkomin og takið óhikað með ykkur gesti.
Stjórn KFH