Lög Kristilegs Félags Heilbrigðisstétta
1.gr.
Félagið heitir Kristilegt Félag Heilbrigðisstétta, skammstafað K.F.H.
Kenningargrundvöllur
2.gr.
Félagið byggir á kristnum gildum samkvæmt kenningum Biblíunnar og er þverkirkjulegt.
Markmið
3.gr.
Markmið félagsins er:
Að vera vettvangur fyrir kristna heilbrigðisstarfsmenn, styðja við þá sem sinna sálgæslu, miðla fræðsluefni og stuðla að bænalífi og fyrirbænum á stjórnar- og félagsfundum.
Félagar
4. gr.
Félagar geta orðið, þau sem vinna eða hafa unnið á heilbrigðisstofnunum og játa kristna trú.
Stjórn
5.gr.
Allir félagsmenn eru kjörgengir í stjórn félagsins.
a) Aðalstjórn félagsins skal jafnan skipuð fimm til sjö félögum, formanni, ritara, gjaldkera og meðstjórnendum. Allir meðlimir stjórnar skulu boðaðir á stjórnarfundi.
Ef fjöldi stjórnarmanna er jöfn tala hefur formaður oddaatkvæði.
b) Kjörtímabilið er þrjú ár og skulu ekki fleiri en þrír ganga úr stjórn í senn.
c) Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi.
d) Fundargerðir skulu prentaðar og varðveittar í sérstakri fundargerðarbók og eru einnig varðveittar rafrænt.
Aðalfundur
6.gr.
a) Aðalfund ber að halda í október ár hvert og skal hann boðaður með tveggja vikna fyrirvara.
b) Á aðalfundi leggi stjórnin fram ársskýrslu félagsins og endurskoðaða ársreikninga.
c) Aðalfundargerð skal undirrituð af ritara og formanni.
d) Ef þörf krefur er stjórninni heimilt að boða til auka aðalfundar og þá á sama hátt og reglubundins aðalfundar.
Lagabreytingar
7.gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á reglubundnum aðalfundi. Skulu tillögur um lagabreytingar sendar félögum með aðalfundarboði. Breytingar öðlast því aðeins gildi að 4/5 allra greiddra atkvæða séu þeim fylgjandi. Lögum félagsins má aðeins breyta í samræmi við 2. grein laganna.
Lögin voru samþykkt á aðalfundi Kristilegs Félags Heilbrigðisstétta þann 27. október 2025