Næsti félagsfundur verður mánudaginn 23. febrúar kl. 17.00 í Kristinsboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60.
Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari flytur upphafborð og bæn.
Dr. Ingibjörg Hjaltadóttir sérfræðingur í öldrunarhjúkrun flytur erindi sem ber yfirskriftina: Gæði þjónustu við aldraða og andleg líðan þeirra.
Hugvekju flytur sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
Súpa og samfélag að dagskrá lokinni.
Verið hjartanlega velkomin og takið með ykkur gesti.
Stjórm KFH