Fyrsti félagsfundur KFH á nýju ári verður mánudaginn 28. janúar 2013 kl. 17:15 – 19:00.
Fundurinn er í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Efni fundarins er andleg og trúarleg þjónusta innan velferðarþjónustunnar og Lára Björnsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar flytur erindi.
Hugvekju flytur Guðrún Dóra Guðmannsdóttir hjúkrunarfræðingur í öldrunarþjónustu Landspítala.
Súpa og samfélag í lok fundar.
Allir velkomnir